Aðalfundur Meiðs 2014 Til baka í fundagerðir
Aðalfundur haldinn 7. júní í Skógargerði
Mættir voru: Hlynur Bragason, Ívar Ásgeirsson og Sigríður Dagný Þorvaldsdóttir (stjórn Meiðs). Auk þeirra Baldur Pálsson, Dagný Bergþóra Indriðadóttir, Dagný Sigurðardóttir, Hannes Kjartan Baldursson, Helgi Ómar Bragason, Hlynur Helgason, Hörður Bragi Helgason, Ingigerður Sólveig Sverrisdóttir, Jóhann Páll Hreinsson, Kristófer Vikar Hlynsson, Ragnhildur Indriðadóttir og Sólrún Víkingsdóttir.
1. Skýrsla stjórnar
Hlynur Bragason, formaður, hóf fundinn og sagði frá störfum stjórnar og félagsins síðasta ár. Fram kom að leiga á húsinu hefði gengið vel síðasta ár og ánægjulegt að sjá að leigan er ekki eingöngu bundin við sumartímann. Kjallari hússins var tekinn rækilega í gegn síðasta ár, parketlagður og gert við veggi í herbergi gegnt baðherberginu. Þær framkvæmdir voru í höndum Stefáns Hermannssonar.
Fundurinn var að þessu sinni haldinn í lok vinnudags í Skógargerði sem tókst afskaplega vel enda blíðskaparveður. Ívar Ásgeirsson hafði dvalið á staðnum í vikutíma fyrir vinnuhelgi og undirbúið pallasmíði í tóttinni og reist undirstöður undir 70 fermetra pall. Fyrir vikið var hægt að ljúka smíðinni þessa helgi. Garðhús var reist á pallinum þar sem geyma á garðáhöld, garðhúsgögn og grill yfir vetrartímann. Auk þess var húsið þrifið og garður snyrtur. Garðhúsgögn og grill voru þrifin og borið á garðborðið.
2. Reikningar ársins bornir undir atkvæði
Gjaldkeri félagsins, Ívar Ásgeirsson, lagði fram yfirlit yfir reikninga félagsins. Kom fram að rafmagnsreikningurinn hefur lækkað nokkuð milli ára en það hefur ekki gerst áður. Enn sem fyrr er rafmagn þó stærsti útgjaldaliðurinn í rekstri hússins eða rúmar 330.000 kr. en heildarrekstrarkostnaður er um 550.000 kr. Útgjöld vegna framkvæmda voru um 800.000 kr á reikningsárinu. Vegur þar þyngst kostnaður vegna viðgerða á kjallara (um 580.000 kr.) og garðhúss (um 230.000 kr.). Tekjur félagsins (félagsgjöld og leigutekjur) námu rétt rúmri milljón árið 2013. Fjárhagsstaða félagsins er góð þrátt fyrir kostnað við framkvæmdir og í ársbyrjun voru um 500.000 kr. á reikningi félagsins. Reikningar voru bornir undir atkvæði og samþykktir samhljóða. Reikningsyfirlit félagsins má sjá vefnum, skogargerdi.is.
3. Ákvörðun félagsgjalda og leigugjalds
Á fundinum var samþykkt að hækka bæði félagsgjöld og leigu en hækkunum hefur verið stillt í hóf undanfarin ár.
Félagsgjald fyrir árið 2015 verður 5.500,- fyrir 25-39 ára og 8.000 fyrir 40 ára og eldri.
Leiga fyrir árið 2015 verður sem hér segir:
júní, júlí og ágúst: kr. 35.000 vikan
aðrir mánuðir: kr. 25.000
helgarleiga: kr. 12.500
Helgarleiga er ekki í boði nema vikan að helginni sé laus. Þetta þarf sérstaklega að hafa í huga yfir sumartímann þegar mest ásókn er í húsið.
Rætt var um leigu á húsinu fyrir aðra en ættingja í lengri tíma og ákveðið að hafa markaðsverð að leiðarljósi við ákvörðun leigunnar. Þetta á við um aðila utan ættarinnar sem hafa leigt húsið lengur en viku utan sumartíma.
4. Kosning stjórnar og skoðunarmanns reikninga
Stjórn Meiðs var endurkosin sem og skoðunarmaður reikninga. Stjórn Meiðs árið 2014-2015 er sem hér segir:
Hlynur Bragason, formaður
Ívar Ásgeirsson, gjaldkeri
Sigríður Dagný Þorvaldsdóttir, ritari
Skoðunarmaður reikninga: Ragnheiður Guðnadóttir
Til vara í stjórn: Sigurgeir Sveinsson og Örnólfur Thorsson
5. Breytingar á samþykktum félgsins
Engar tillögur að lagabreytingum komu fram á fundinum. Stjórn telur tímabært að fara að huga að lagabreytingum í ljósi reynslunnar af starfi félagsins. Verður það verkefni stjórnarinnar að forma tillögur að lagabreytingum sem verða lagðar fyrir aðalfund á ættarmóti í júlí 2015. Þar verða væntanlega nægilega margir fundarmenn til að samþykkja lagabreytingar eins og kveðið er á um í núgildandi samþykktum félagsins.
6. Framkvæmdir framundan
Rætt var um að kominn sé tími til að mála húsið að utan, a.m.k. veggi, þ.e. hvíta litinn. Fram kom að gott væri ef tækist að mála fyrir ættarmót á næsta ári, Ennfremur var rætt um að taka til hendinni í græna herberginu uppi. Þar þarf að laga panel og mála. Að öðru leyti verður ástandslýsing sem gerð var fyrir tveimur árum höfð til hliðsjónar við framkvæmdir og nauðsynlegt viðhald á húsinu. Lýsingin er aðgengileg á vefnum skogargerdi.is.
7. Önnur mál
Á fundinum var ákveðið að ættarmót verði haldið helgina 18.-19. júli næsta ár. Ættarmótsnefnd er í burðarliðnum en hana skipa m.a. Ragnhildur Indriðadóttir, Erna Indriðadóttir, Ragnheiður Hermannsdóttir og Sigríður Dagný Þorvaldsdóttir.
Eins og nefnt var hér að framan hefur stór pallur verið reistur í tóttinni. Á fundinum var rætt um að grenitré við norðurvegg tóttarinnar væru farin að skyggja verulega á birtu og sól í tóttinni. Á fundinum var samþykkt, eftir nokkrar umræður, að fella þessi tré.
Dagný Sigurðardóttir nefndi að ósk hefði komið frá notendum hússins að gott væri að hafa örbylgjuofn í eldhúsinu. Var samþykkt að festa kaup á einum slíkum.
Sorpmál voru rædd og ákveðið að hafa þau mál óbreytt, þ.e. engin sorptunna verður við húsið en notendur sjá um að koma rusli á viðeigandi stað.
Rætt var um brunaviðvörunarkerfið og ákveðið að setja vatnsskynjara á kerfið.
Uppfærsla á ættartali barst í tal og var stjórn falið að huga að þeim málum.
Sigríður Dagný Þorvaldsdóttir, ritari Meiðs.