Ljóðasafn
Ágúst Marinósson
Ágúst er sonur Þórhöllu Gísladóttur og Marinós Kristinssonar. Hann hefur töluvert feingist við skáldskap og á þessari síðu gefur að líta ljóð og vísur eftir hann.
Draumur
Á valdi draums sem dregur þig á tálar
er dagsins erill varla lengur til.
Í hugarfró á ferðalagi sálar
þar finnst að lokum takmark ef ég vil.
Ég flý í drauminn, fæ um stund að gleyma
hvað fallvalt lífið hefur gefið mér.
Ótruflaður fer um hulda heima
í hugarfylgsnin ekki nokkur sér.
Ég ræð í draumi sjálfur söguhaldi
og sérhvern þráð í lófa mér ég hef
Allt sem gerist er á mínu valdi
einn ég fer og bestu spilin gef.
En óskir mínar uppfylltar í draumi
er aðeins blekking, stundargaman eitt
Viljalaus ég flýt svo fram með straumi
fæ að lokum tæpast neinu breytt
Þó má ekki ofurseldur verða
þeim áhrifum sem draumaveröld býr.
Kröfur dagsins aftur að þér herða
uns aftur birtist vökudraumur nýr
Vindur að norðan.
(Þegar sprengt var í gegnum Hvalfjarðargöngin
stóð vindstrengur í gegn til suðurs og
hafði Halldór Blöndal, þáv. samgöngu
ráðherra og þingmaður í Norðurlandskjörd.
eystra, orð á því hvað norðanáttin væri hressandi.)
Gerist í Reykjavík gasmengað oft
þar gengur á súrefnisforðann.
En göng undir Hvalfjörðinn leiða nú loft
sem líklega kemur að norðan.
Trúlegt mér þykir að þetta sé loft
úr Þingeyjarsýslunum báðum.
þar hafa bændur og búalið oft
með Blöndalnum verið í ráðum.
Á Reykjavík greina má líflegri lit
og lítt á sér mengunin bærir.
Er Þingeyska loftið nú leikur um vit
og lífsandann borginni færir.
ágm98
Haust
Sumarið kveður nú kólnar í dal
kjarrið og víðirinn fölnar.
Í gljúfrunum freyðir við fossanna tal
en fjalldrapinn þegjandi sölnar.
Blómin sín krónublöð fella að fold
frjóangar stönglana hneygja,
þau leggjast í dvala og deyja í mold
í duftið sig verða að beygja.
Á heiðarnar setur nú haustið sinn lit
í húminu gular og rauðar.
Tjarnir af fuglunum tæmast með þyt
í tóminu standa nú auðar.
Fuglarnir hópa sig senn yfir sjó
suður til heitari landa,
eðlið þeim benti og burtu þá dró
í byrinn til framandi stranda.
Trjálaufin fjúka og flögra um hlað
sem fis þau í golunni bærast.
Haustvísu hrímsvala Kári þeim kvað
í kaf nú að vetrinum færast.
Og hraðstígt á götunum flýtir nú för
fólkið í vindinum kalda.
Í svipmóti biturt og bítur á vör
því brátt skal á veturinn halda.
Frétt í DV um að drukkin kona hefði bitið yfirþjóninn á hótel Sögu í afturendann
Viðsjál eru vífin heit
í varga dimmri þvögu.
Yfirþjóninn ungfrú beit
aftanfrá á Sögu.
Orðið hefði meira mál
en minna talið gaman.
Ef að meyjan ör við skál
árás gert að framan.
ágm95
Vetur
Frostið hart og fönnin mjúk
foldu prýðir haddur.
Nístingskuldi, morðanfjúk
nepju djöfuls gaddur.
Stuttir dagar, stormar æða
stórsjór rís og hristir far.
Myrkur, kuldi manninn mæða
á mararslóð í janúar.
Ýmsar stökur
Haustdimm nótt í nóvember
næðir kalt um miðin.
Notalega í næði er
næturvaktin liðin.
Oft var þörf en nauðsyn nú
ná hér værum blundi.
Raunin er víst reyndar sú
regla á löngum fundi.
Reglur verja rímnagerð
rétt frá erjum segi.
Saman berja vísu verð
en varla á hverjum degi.
Aftastur í andans lest
er ég reyrður hafti
Það er held ég happabest
að halda alveg kjafti.
Meira varla má ég fá
mun samt harla gleiður
Misst hef alla ástarþrá
er með skallahreiður.
Erfið glíma er í dag
einn í stímabraki.
En að ríma er örðugt fag
og í tímahraki
Undan hallar, hárin grá
held ég varla spretti.
Misst hef alla ástarþrá
er með skallabletti.
Óðum líður ævin manna
ellistríðið kemur fljótt.
Öðlast tíðum sælu sanna
sá er kvíðir dauðans nótt.
Á valdi draums sem dregur þig á tálar
er dagsins erill varla lengur til.
Í hugarfró á ferðalagi sálar
þar finnst að lokum takmark ef ég vil.
Ég flý í drauminn, fæ um stund að gleyma
hvað fallvalt lífið hefur gefið mér.
Ótruflaður fer um hulda heima
í hugarfylgsnin ekki nokkur sér.
Ég ræð í draumi sjálfur söguhaldi
og sérhvern þráð í lófa mér ég hef
Allt sem gerist er á mínu valdi
einn ég fer og bestu spilin gef.
En óskir mínar uppfylltar í draumi
er aðeins blekking, stundargaman eitt
Viljalaus ég flýt svo fram með straumi
fæ að lokum tæpast neinu breytt
Þó má ekki ofurseldur verða
þeim áhrifum sem draumaveröld býr.
Kröfur dagsins aftur að þér herða
uns aftur birtist vökudraumur nýr
Vindur að norðan.
(Þegar sprengt var í gegnum Hvalfjarðargöngin
stóð vindstrengur í gegn til suðurs og
hafði Halldór Blöndal, þáv. samgöngu
ráðherra og þingmaður í Norðurlandskjörd.
eystra, orð á því hvað norðanáttin væri hressandi.)
Gerist í Reykjavík gasmengað oft
þar gengur á súrefnisforðann.
En göng undir Hvalfjörðinn leiða nú loft
sem líklega kemur að norðan.
Trúlegt mér þykir að þetta sé loft
úr Þingeyjarsýslunum báðum.
þar hafa bændur og búalið oft
með Blöndalnum verið í ráðum.
Á Reykjavík greina má líflegri lit
og lítt á sér mengunin bærir.
Er Þingeyska loftið nú leikur um vit
og lífsandann borginni færir.
ágm98
Haust
Sumarið kveður nú kólnar í dal
kjarrið og víðirinn fölnar.
Í gljúfrunum freyðir við fossanna tal
en fjalldrapinn þegjandi sölnar.
Blómin sín krónublöð fella að fold
frjóangar stönglana hneygja,
þau leggjast í dvala og deyja í mold
í duftið sig verða að beygja.
Á heiðarnar setur nú haustið sinn lit
í húminu gular og rauðar.
Tjarnir af fuglunum tæmast með þyt
í tóminu standa nú auðar.
Fuglarnir hópa sig senn yfir sjó
suður til heitari landa,
eðlið þeim benti og burtu þá dró
í byrinn til framandi stranda.
Trjálaufin fjúka og flögra um hlað
sem fis þau í golunni bærast.
Haustvísu hrímsvala Kári þeim kvað
í kaf nú að vetrinum færast.
Og hraðstígt á götunum flýtir nú för
fólkið í vindinum kalda.
Í svipmóti biturt og bítur á vör
því brátt skal á veturinn halda.
Frétt í DV um að drukkin kona hefði bitið yfirþjóninn á hótel Sögu í afturendann
Viðsjál eru vífin heit
í varga dimmri þvögu.
Yfirþjóninn ungfrú beit
aftanfrá á Sögu.
Orðið hefði meira mál
en minna talið gaman.
Ef að meyjan ör við skál
árás gert að framan.
ágm95
Vetur
Frostið hart og fönnin mjúk
foldu prýðir haddur.
Nístingskuldi, morðanfjúk
nepju djöfuls gaddur.
Stuttir dagar, stormar æða
stórsjór rís og hristir far.
Myrkur, kuldi manninn mæða
á mararslóð í janúar.
Ýmsar stökur
Haustdimm nótt í nóvember
næðir kalt um miðin.
Notalega í næði er
næturvaktin liðin.
Oft var þörf en nauðsyn nú
ná hér værum blundi.
Raunin er víst reyndar sú
regla á löngum fundi.
Reglur verja rímnagerð
rétt frá erjum segi.
Saman berja vísu verð
en varla á hverjum degi.
Aftastur í andans lest
er ég reyrður hafti
Það er held ég happabest
að halda alveg kjafti.
Meira varla má ég fá
mun samt harla gleiður
Misst hef alla ástarþrá
er með skallahreiður.
Erfið glíma er í dag
einn í stímabraki.
En að ríma er örðugt fag
og í tímahraki
Undan hallar, hárin grá
held ég varla spretti.
Misst hef alla ástarþrá
er með skallabletti.
Óðum líður ævin manna
ellistríðið kemur fljótt.
Öðlast tíðum sælu sanna
sá er kvíðir dauðans nótt.
Til forsetans
Í tilhugalífinu með Dorrit fór forsetinn í
útreiðatúr sem endaði með ósköpum
einsog allir vita. Í viðtali við fréttamann
gerði hann lítið úr meiðslum sínum, en hafði orð
á því hve dagurinn hefði verið fagur og
náttúran skartað sínu fegursta.
Gleymist mæða sorg og sút
sögur berast víða.
Með hefðarfrúnni fór nú út
forsetinn að ríða.
Unnir þessi hrossum heitt
huldukonan mennska.
Af stað í flýti fór nú greitt
fylgdarmærin enska.
Stóðið allt á fullri fart
fram nú rann um grundir.
Lömdu vegi hófar hart
hló í klettum undir.
Hæfni sína þrek og þor
þætti vaskra manna.
Bessastaðabóndinn má
breskum aðli sanna.
Tók hann nú um tauma fast
tempra hraðann vildi
Greip þá folann frekjukast
forsetann ei skildi.
Út af vegi ólmur þaut
yfir skurði og flóa.
Böðlaðist sem brjálað naut
um brekkur laut og móa
Forsetinn í faxið þreif
folinn spennti harðar.
Upp í loft úr söðli sveif
síðan beint til jarðar.
Leit í hending hól og veg
horfði rétt í skyndi.
Snoðin tún og snyrtileg
snjór á Heklutindi.
Faðmaði svo forsetann
fósturjörðin bjarta.
Axlarbraut hann aumingjann
með ástarkvalið hjarta.
Sá í Ættarpóstinum skrif frá Indriða þess efnis, að hefði ég komið á ættarmótið, hefði ég óðar verið útnefndur ættarskáld mótsins. Þarna varð ég af miklum nafnbótum og fékk alvarlega bakþanka vegna fjarveru minnar á fyrrnefndri ættarsamkomu. Þegar ég hafði jafnað mig nokkuð barði ég saman eftirfarandi afsökunarvísur.
Annir stórar að mér vaxa
allt er hér af sömu rót,
velja um að veiða laxa
og vilja sækja ættarmót.
Milli kosta varð að velja,
víst ég dái ættarmót.
Vænni kost þó vildi telja
veiðislark og Blöndufljót.
Í góðu veðri á Blöndubökkum
baxið fremur illa gekk
Kvaddi á með engum þökkum
öngullinn í rassi hékk.
Fyrir bannsett Blöndufljótið
bætti lítt mitt eigin hag,
ef ég hefði mætt á mótið
myndi teljast skáld í dag.
Í skúffum óbætt ljóð mín liggja
litla upphefð hlýt um sinn,
en sárabætur seinna þiggja
um síðir kemur tími minn.
ágm2000
Ýmislegt
Nú er alltaf norðanátt
nú er kalt hjá rónum.
Nú er svalt í gluggagátt
gengið valt í krónum.
Langir skuggar líða hjá
leiftra skýjasalir.
Glampar sól á sundin blá
sindra fjöll og dalir
Lífsklukkan tifar í eistunum
Fyrirsögn í DV des 1997 .
Eistun eru þarfaþing
þykja mönnum fengur.
Í þeim lasta lífs í hring
líkamsklukkan gengur.
Þótt eistun þyki æði smá
á þeim hvílir törnin
Athyglina oft þau fá
úr þeim koma börnin.
ágm98
Í tilhugalífinu með Dorrit fór forsetinn í
útreiðatúr sem endaði með ósköpum
einsog allir vita. Í viðtali við fréttamann
gerði hann lítið úr meiðslum sínum, en hafði orð
á því hve dagurinn hefði verið fagur og
náttúran skartað sínu fegursta.
Gleymist mæða sorg og sút
sögur berast víða.
Með hefðarfrúnni fór nú út
forsetinn að ríða.
Unnir þessi hrossum heitt
huldukonan mennska.
Af stað í flýti fór nú greitt
fylgdarmærin enska.
Stóðið allt á fullri fart
fram nú rann um grundir.
Lömdu vegi hófar hart
hló í klettum undir.
Hæfni sína þrek og þor
þætti vaskra manna.
Bessastaðabóndinn má
breskum aðli sanna.
Tók hann nú um tauma fast
tempra hraðann vildi
Greip þá folann frekjukast
forsetann ei skildi.
Út af vegi ólmur þaut
yfir skurði og flóa.
Böðlaðist sem brjálað naut
um brekkur laut og móa
Forsetinn í faxið þreif
folinn spennti harðar.
Upp í loft úr söðli sveif
síðan beint til jarðar.
Leit í hending hól og veg
horfði rétt í skyndi.
Snoðin tún og snyrtileg
snjór á Heklutindi.
Faðmaði svo forsetann
fósturjörðin bjarta.
Axlarbraut hann aumingjann
með ástarkvalið hjarta.
Sá í Ættarpóstinum skrif frá Indriða þess efnis, að hefði ég komið á ættarmótið, hefði ég óðar verið útnefndur ættarskáld mótsins. Þarna varð ég af miklum nafnbótum og fékk alvarlega bakþanka vegna fjarveru minnar á fyrrnefndri ættarsamkomu. Þegar ég hafði jafnað mig nokkuð barði ég saman eftirfarandi afsökunarvísur.
Annir stórar að mér vaxa
allt er hér af sömu rót,
velja um að veiða laxa
og vilja sækja ættarmót.
Milli kosta varð að velja,
víst ég dái ættarmót.
Vænni kost þó vildi telja
veiðislark og Blöndufljót.
Í góðu veðri á Blöndubökkum
baxið fremur illa gekk
Kvaddi á með engum þökkum
öngullinn í rassi hékk.
Fyrir bannsett Blöndufljótið
bætti lítt mitt eigin hag,
ef ég hefði mætt á mótið
myndi teljast skáld í dag.
Í skúffum óbætt ljóð mín liggja
litla upphefð hlýt um sinn,
en sárabætur seinna þiggja
um síðir kemur tími minn.
ágm2000
Ýmislegt
Nú er alltaf norðanátt
nú er kalt hjá rónum.
Nú er svalt í gluggagátt
gengið valt í krónum.
Langir skuggar líða hjá
leiftra skýjasalir.
Glampar sól á sundin blá
sindra fjöll og dalir
Lífsklukkan tifar í eistunum
Fyrirsögn í DV des 1997 .
Eistun eru þarfaþing
þykja mönnum fengur.
Í þeim lasta lífs í hring
líkamsklukkan gengur.
Þótt eistun þyki æði smá
á þeim hvílir törnin
Athyglina oft þau fá
úr þeim koma börnin.
ágm98
Fyrir nokkru hugleiddi ég að fara að skrifa endurminningar mínar einsog allir íslendingar gera fyrr en síðar á lífsleiðinni. Eftir að hafa hugsað málið stíft í nokkurn tíma og reynt að grufla upp úr fortíðinni einhver ódauðleg afrek, veraldleg og/eða andleg gaf ég þetta frá mér. Eftir stóðu nokkrar vísur sem fylgja hér með.
Þó víða liggi leiðir manns,
og löngum úti á hafi,
eg er sonur Austurlands
ekki nokkur vafi.
Burtu þaðan lá mín leið
lífið þurfti að kanna,
virtist ungum gatan greið
getu vildi sanna.
Á útnes norður leið mín lá
Langanesið kalda.
Þarna ríkir þokan grá
þung er hafsins alda.
Til Reykjavíkur fór ég fljótt
freistingarnar biðu
í djammi bæði dag og nótt
dável árin liðu.
Í Vestmanneyjum var ég stutt
válegt sýndist heldur,
burt var öllum ráðum rutt
reis úr jörðu eldur.
Á Akureyri átti stans
ekki hélt þar bandið
reikult þykir ráðið manns
að rása þetta um landið.
Hjá Skagfirðingum festi fót
framtíð skal ei kvíða
Þar menn halda hestamót
hlæja, drekka og ríða.
Þó ég hafi flækst um fold
og flakkað nokkuð víða
Aldrei flý ég Íslands mold
og engu þarf að kvíða.
ágm10
Þó víða liggi leiðir manns,
og löngum úti á hafi,
eg er sonur Austurlands
ekki nokkur vafi.
Burtu þaðan lá mín leið
lífið þurfti að kanna,
virtist ungum gatan greið
getu vildi sanna.
Á útnes norður leið mín lá
Langanesið kalda.
Þarna ríkir þokan grá
þung er hafsins alda.
Til Reykjavíkur fór ég fljótt
freistingarnar biðu
í djammi bæði dag og nótt
dável árin liðu.
Í Vestmanneyjum var ég stutt
válegt sýndist heldur,
burt var öllum ráðum rutt
reis úr jörðu eldur.
Á Akureyri átti stans
ekki hélt þar bandið
reikult þykir ráðið manns
að rása þetta um landið.
Hjá Skagfirðingum festi fót
framtíð skal ei kvíða
Þar menn halda hestamót
hlæja, drekka og ríða.
Þó ég hafi flækst um fold
og flakkað nokkuð víða
Aldrei flý ég Íslands mold
og engu þarf að kvíða.
ágm10