Gísli Helgason

Gísli Helgason, 1a
f. í Seljateigi í Reyðarfirði 9.2. 1881, d. í Skógargerði 30.12. 1964. 
Gísli fluttist á fyrsta ári með foreldrum sínum frá Seljateigi að Skógargerði í Fellum og þar ólst hann upp í hópi margra systkina. Rétt um tvítugt fór Gísli í Möðruvallaskóla og lauk þar námi 1902. Heimkominn gerðist hann brátt umsvifamikill í búskap. Kom í hans hlut að standa 
fyrir búi með móður sinni eftir að faðir hans lést (1904) en keypti jörðina og hóf eigin búrekstur 1906. Hann bjó síðan í Skógargerði til dánardægurs eða í nær 60 ár. Gísli lét sig félagsmál varða og gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir sveit og hérað. 

K (8.11. 1908): Dagný Pálsdóttir f. í Hólum í Hornafirði 4.3. 1885, d. á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 2.4. 1979. For.: Páll, f. á Þverá á Síðu 25.7. 1834, d. á Krossi í Fellum 2.2. 1894, Þorsteinsson, Helgasonar og k.h. Margrét, f. á Oddum í Meðallandi 27.4. 1839, d. á Krossi 5.9. 1922. Ólafsdóttir bónda á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi Ólafssonar (sjá um Gísla og Dagnýju í Skógargerðisbók, 3. og 4. kap.).
 
Picture