Að leigja Skógargerði
Ef þú hefur áhuga á að leigja Skógargerði og þú ert í ættarfélaginu Meið þá skalt þú hafa samband við Margréti Urði Snorradóttur á Egilsstöðum, hún tekur við bókunum. 
Síminn hjá Margéti Urði er  869 7356 .
Skógargerði er leigt út fyrir félagsmenn allt árið, viku í senn yfir sumarmánuðina,  frá föstudegi kl. 16.00 
Sængur og koddar eru til staðar en gert er ráð fyrir að gestir komi með eigin sængurföt. 

Sængurföt sem eru í skápnum framan við Matarkompuna, er heimilt að nota ef á þarf að halda, en þá verður að skila þeim þvegnum og frágengnum aftur í skápinn við brottför.

(((Gæludýr eru ekki leyfð inni í húsinu)))
Ákveðið hefur verið að gera tilraun með að heimila hundahald en þá skal fara eftir meðfylgjandi.

Hundar eru hafðir mest utandyra.
Hundar mega ekki vera uppí rúmum, stólum, eða öðrum húsgögnum.
Hundar eru ekki leyfðir á efstu hæð hússins.
Hundar hafa aðsetur í kjallara hússins. Sofa þar og borða.
Eftir vikuna þarf að vanda vel þrif með tilliti til þess að hundur hafi verið með í för. 
Taka upp allan hundaskít á lóðinni og henda.


Kæru hundaeigendur til að þetta geti gengið og hundarnir geti notið þess að fara með ykkur í Skógargerði þá þarf að uppfylla þessi skilyrði og ganga vel um að öðrum kosti verður aftur sett hundabann á í Skógargerði. þetta stendur þá og fellur með ykkur. 
Leiga fyrir húsið er sem hér segir: 
Aðeins hægt að leigja minnst viku yfir sumarmánuðina
             júní, júlí og ágúst:  kr. 60.000 vikan 
             aðrir mánuðir:        kr. 45.000 vikan 
             Helgarleiga:           kr. 25.000  (utan sumarmánaða)
             Stakir dagar;          kr. 15.000  (utan sumarmánaða)
ATH.  Árgjald leggst ofaná leigu hafi það ekki verið greitt.

Gjaldkeri mun senda greiðslukröfu í banka viðkomandi, þannig að við bókun þarf að gefa upp á hvaða bankareikning á að senda kröfuna.
Leigu á sumartíma skal greiða minnst mánuði áður en leigutímabil hefst, annars úthlutað öðrum.

ATH. Þegar ættarmót er haldið, er húsið frátekið, frá kl 16 á föstudegi til kl 16 á sunnudegi, fyrir ættarmótsnefnd.

ALNETIР(INTERNETIÐ) er í húsinu, sjá neðar á síðunni
Hlekkir á myndir með nöfnum og innbú með sögu gripa eru neðst á síðunni
Í húsinu eru 13 rúmstæði með góðum dýnum.
3 tveggja manna herbergi, þar af eitt með koju fyrir þriðja. 
​2 einsmanns og í baðstofunni eru 4 rúmstæði, einnig eru til tvær góðar dýnur til að setja á gólf.
​Í Norðurstofu er mjór dívan.
Samanbrjótanlegt barnarúm  ásamt barnastól eru í kjallara.
Þvottavél og þurrkari eru á baðherberginu í kjallara.
Nú er komin snyrting í anddyrinu á 1. hæðinni
Picture

Baðstofugaflinn

Picture

Gömul rúm með nýjum dýnum

Picture

Norðurstofa

Picture

Norðurherbergi

Picture

Víkingsherbergi

Picture

Baðstofan

Picture

Kompan

Picture

Nýtt eldhús

Picture

Eldhús - borðstofa - gangur

Picture

Búrið

Picture

Þvottavél og þurrkari á baðinu

Picture
Picture

Pallurinn góði í tóftinni

Picture
Picture
ALNETIÐ (INTERNETIÐ)
Nú er Skógargerði tengt með ljósleiðara og þjónustuaðili er AUSTURLJÓS.
Netinu er dreift um húsið með litlum sendum sem eru staðsettir í nokkrum gluggum og tengdir í rafmagn, því þarf að passa uppá að taka þá ekki úr sambandi, ef það gerist þá setjið í samband aftur, en þá þarf að bíða nokkra stund uns netið kemst á aftur. Það blikkar rautt ljós ofaná tækjunum en þegar það er orðið bláhvítt og stöðugt þá á samband að vera komið á.
Gagnamagn er ótakmarkað og innifalið í húsaleigunni.

Netið heitir austurljos-36E6
Lykilorð er:  er á spjaldi í borðstofunni.